Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 11

Borgarstjórar fortíðarinnar

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Reykjavik mayors: Timeline

Nú þegar sveitastjórnarkosningarnar eru handan við hornið er áhugavert að horfa um öxl og skoða hverjir hafa setið í borgarstjórastólnum, hvenær og hversu lengi. Hingað til hafa borgarstjórarnir verið 21 talsins, þar af 11 sjálfstæðismenn, fjórir frá Samfylkingunni (og R-Listanum) tveir frá öðrum hægri flokkum, tveir óflokksbundnir (þeir tveir fyrstu), einn óháður sem var ráðinn af meirihluta Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins og einn grínisti.

Myndin hér að ofan sýnir svokallaða Gantt mynd sem sýnir hvenær borgarstjórarnir 21 voru við völd og hvenær á æviskeiði þeirra þeir sinntu starfinu. Takið eftir borgarstjórunum sex sem sátu á undan Jóni Gnarr, en enginn þeirra sat heilt kjörtímabil.

Myndin hér að neðan sýnir hversu lengi hver borgarstjóri sat við völd. Þrír borgarstjórar hafa setið lengur en tíu ár í embættinu, sjálfstæðismennirnir Gunnar Thoroddsen og Geir Hallgrímsson og Knud Zimsen sem var óflokksbundinn. Aðeins 11 af 21 sátu heilt kjörtímabil eða meira.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
mayors-time-in-office

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 11

Trending Articles